Hjólreiðar og Danir…púhah

14 09 2009

Þegar ég flutti fyrst til Kaupmannahafnar fannst mér svo dásamlegt að allir hjóluðu svona mikid. Maður hjólaði og dáðist að útsýninu, dró að sér ferska loftið og naut þess að vindurinn feykti hárinu til og frá. Það er líka frábært að fá svona auka púl án þess að taka eftir því þannig séð. Ég er líka mjög glöð að sleppa við strætó því að ég þoli ekki að vera í litlum rýmum með mismunandi lyktum, of miklum hita og allt of mikilli nálægd við ókunnuga. Svo ekki sé minnst á sýklana..sem eru útum allt.

En það að hjóla í Køben er alls ekki eins mikill dans á rósum og maður gæti stundum haldid. Hér eru dæmi um hvað það getur reynt á gedheilsu manns:

  • Ég þoli ekki stelpur á hjólum sem þær virðast engan veginn ráða við og eru svo kannski að tala í símann, smsa, skipta um lag á ipodnum, eða að gera eitthvað sem er ekki viðeigandi og alveg óþarfi í stuttum hjólatúr.
  • Fólk sem hjólar svooo hægt að það er eins og það sé að rannsaka hversu hægt það geti hjólad án þess að detta.
  • Þetta sama hægfara fólk sem maður þurfti að brasa við að taka fram úr, kemur svo og treður sér fram fyrir alla þegar maður   er  að bíða eftir grænu ljósi. Hemmmmskt.
  • Pör sem hafa þörf fyrir að leiðast á meðan þau hjóla. Seriously??
  • Svo eru til hjóla dólgar. Svona gaurar í rosalega þröngum spandex göllum og spinningskóm og öllu heila klabbinu. Þeir hjóla á villimannslegum hraða sem á engan veginn heima annarstaðar en á hraðbrautum Þýskalands og auðvitað, auuuuðvitað eru þeir fólkið sem er ekki með bjöllur á hjólunum sínum. Þeir læðast eins og vindurinn upp að manni og segja svo “biiing” eða “undskyyyld” svo að hjartað manns stoppar í hættulega langan tíma meðan maður reynir að stíma ekki á kyrrstæðan bíl eða að hafna face down upp á gangstétt. Vá í alvöru, ein lítil bjalla getur ekki aukið loftmótstöðuna svona mikið.
  • Fólk sem lagar ekki hjólid sitt þegar það ískrar geðveikislega mikid. Það getur verið einstaklega pirrandi þegar sama fólkid er kannski að hjóla fyrir aftan mann í 20 mínútur. Hvað er málið? Er það athyglin? Er þetta eins og fallegasta tónlist í þeirra eyrum?
    Oooog síðast en ekki síst, fólk sem er komið yfir á mið gatnamót áður en það kemur grænt og stefnir þannig öryggi sínu og annarra í hættu.

Jesús, það er eins og að allt fari í taugarnar á manni! En þá verðið þið, ef þið einhvern tímann ætlið að hjóla í Kaupmannahöfn, bara viðbúin. Ég hinsvegar er bara gleðigjafi þegar ég hjóla, syng eins hátt og ég get með lögunum sem eru carefully chosen fyrir hjólreiðatúra á Ipodnum mínum (ooook,það eina pirrandi sem ég geri þegar ég hjóla). Og nei, ég skipti ekki um lag á meðan ég er ad hjóla.

Farið vel með ykkur!

Hjól í Kaupmannahöfn

Hjól í Kaupmannahöfn





París!!!! est trés jolie

9 09 2009

Jæja. Thá er madur sko aldeilis búin ad koma til Parísar. Ferdin einkenndist af afslöppudum skodunarferdum, kaffidrykkju, kvefi (fyrir mig), svolítid threyttri skólafrönsku, baguettes, hommadjammi, og bara almennum notalegheitum.

Hommadjamm í París: sko, á einum bar vorum vid sökud um ad vera “Rrrrrude and impoooolite” tví vid löbbudum of hratt thar inni? Á ödrum bar var mér bannad ad koma inn tví ég er kvenkyns. Shiiiitttt hvad ég var ógedslega brjálud. Mér finnst thetta bara alls ekki snidugt. Eiga thá ad vera barir thar sem samkynhneigdir eru bannadir? Eda svartir? Mig langadi svoo ad hjóla í dyravördinn. En ég gerdi thad nú ekki! Mér finnst bara asnalegt ad thetta sé leyfilegt ad mismuna fólki svona, og sérstaklega ad thad sé gert af minnihlutahóp sem er ad berjast fyrir sínum jafnréttindum. Kannski finnst einhverjum thetta asnalegt af mér en thetta er bara mín skodun.

En já, París var FAB. Takk Ásinn minn fyrir ædislega ferd. Je t’aime beaucoup!! Thad sem er næst á minni dagskrá er hinsvegar öllu hversdagslegra. Skóli, lærdómur, vinna og rækt…og leitin ad vaskekorti.

Mon frére et moi

Awesome!





Tvottur

25 08 2009

Stúlkan var búin ad safna tvotti í nánast heilan mánud. Hún ákvad tví ad tími væri komin á ad troda draslinu í trjá Ikea poka og dröslast af stad. Thegar stúlkan var búin ad ganga tæplega helming leidarinnar thá áttadi hún sig á ad hún thurfti ad eiga haug af klinki til ad tvo. Hún átti ekkert haug af klinki. DÆS. Hún kom auga á hradbanka og ákvad ad taka út pening sem svo væri hægt ad skipta í haug af klinki.

Stúlkan var komin yfir á kortinu. Helvítis fokking fokk. Thá ákvad hún ad fara í sjoppu, kaupa sódavatn og fá ad taka framyfir. Ok, thad var hægt ad fá 200dkk framyfir. Yess hugsadi stúlkan med sér og spurdi “er hægt ad fá peninginn í klinki?” Neiii thad var ekki hægt.

Stúlkan ákvad thá ad fara í ísbúdina og kaupa latte til ad fá klink til baka. Hún fékk smá klink tilbaka en ekki nóg. Thá spurdi hún hvort ad hægt væri ad skipta hundradkalli. Neiii thad var ekki hægt.

Jæja, thá var stúlkan komin med kaffi og sódavatn sem hún hafdi enga lyst á. En ekki enn med haug af klinki. Vesen. Hún drösladist af stad aftur, med alla ikea pokana og fullar hendur af veitingum. Stúlkan ákvad ad fara í adra sjoppu. Keypti tyggjó og var loksins búin ad safna haug af klinki. Rétt tæpum klukkutíma eftir ad hún fór ad heiman.

Nú var hún tilbúin til thess ad tvo og dreif sig í tvottahúsid. Tród í hverja vélina á fætur annari og dældi klinki í maskínuna. Áttadi sig svo á ad hún hafdi gleymt tvottaefninu. Helvítis fokking fokk- aftur. Thad var sem betur fer hægt ad kaupa tvottaefni á stadnum og thad gekk aldeilis á klinkid.

Loks gat hún sett vélarnar af stad. Sveitt eftir gönguna í 27 stiga hita lét hún sig síga nidur á eina stólinn í tvottahúsinu. Áttadi sig svo á ad hún hafdi gleymt bókinni sinni. Og Ipod-inum. Sat med fullt fang af veitingum sem hún hafdi enga lyst á. Frábært.

Eftir thrjá tíma var hún loksins búin ad tvo. Thá tók heimferdin vid. Svona mikid af tvotti sem er ekki nógu vel undinn er hinsvegar thungur. Thegar stelpan kom loks heim, sveitt og í brjáludu skapi, var hún komin med djúp för eftir pokana á axlirnar. Great. Eina sem ad vantadi.

Thad fer varla fram hjá neinum ad thetta er saga af mér?





Lindevang!

26 05 2009

Það er klárlega kominn tími á eitt stykki bloggfærslu frá mér! Þad sem hefur helst drifið á daga mína síðan síðast er að ég er flutt í aðra íbúd. Ég og Sólveig vorum alveg himinlifandi að fá að búa lengur saman:) Gaurinn sem leigði okkur íbúðina var hinsvegar ansi vafasamur. Hann er semsagt vinur mannsins sem á hana en hann býr á Írlandi.

Þessi gaur keyrir um á svörtum blæubíl og er alltaf í jakkafötum. Hann hefur komið við í eins og einum ljósabekk eða jafnvel tveimur og útkoman er eins og ristað brauð með smjöri. Hann hefur líka þjónustufólk sem sér um ýmislegt fyrir hann, þegar við vorum að flytja þa vildum við losna við hluta af dóti mannsins sem á íbúdina, þá mætti Nikolaj bara með svaka bíl og tvo BUFF gaura sem ekki töluðu dönsku, og þeir fluttu sumt í bílinn en brytjuðu restina niður í ruslagáminn.

Þegar ég var að taka saman eitthvað af dótinu sem átti að fara með þá fann ég gamlan póst og þad fyrsta sem ég rak augun í var að maðurinn sem á íbúðina er stórskuldugur og bankinn hafði neitað beiðni hans um greiðsludreifingu. Okkur fannst líka skrítið hvað það leit út fyrir að einhver hefði farið héðan í flýti :)

Við Sólveig erum komnar með kenningu um þetta mál. Kannski er Nikolaj maðurinn sem á íbúdina en er búin að skipta um nafn til að flyja yfirvöld. Tja, eða eitthvað í þá áttina! En við erum bara sáttar svo lengi sem við fáum að búa hér :D

Fyrstu kynni okkar af nágrönnum hafa líka verið undarleg. Einn daginn þegar ég var að opna fyrir Sólveigu, stód ungur maður á stigapallinum. Hann spurði hvort ég hafði rekist á konuna við hliðina. Ég sagðist ekki hafa séd hana en að ég hafi heyrt umgang. Hann fór þá bara því að konan vildi augljóslega ekki koma til dyra. Mér datt í hug að þetta hafi bara verið ný leið til að segja fólki upp! En svo nokkrum dögum seinna var ég að koma heim úr skólanum og þá stóð rúmlega sjötugur maður á stigapallinum, og hann spurði mig að nákvæmlega því sama! Annaðhvort var hún aldeilis fjölhæf í stefnumótum eða þá að kellingin var hreinlega bara horfin. Þessi gamli maður var semsagt pabbi hennar og sagði mér að hún hafði ekki svarað honum í þrjár vikur. þá komst ég að því að hún væri svolítið spes (kliiikkk) en hann kallaði á lásasmið og fékk að athuga hvort að þad væri í lagi með hana. það var það væntanlega þar sem maður heyrir reglulega í henni og hún er búin að stilla pottaplöntunum sínum fyrir framan hurðina.

En já, samt bara indælis íbúð og frábær staðsetning! Svo er ég loksins búin með stóra lokaverkefnið fyrir annað ár sem við skiluðum í dag. 50 blaðsíður um bílaiðnaðinn á Spáni. Kræst!!! Við vorum búin klukkan tvö í nótt eftir að hafa sitið samfleytt í sautján tíma. Svona lagað ætti að vera bannað með lögum.

Þetta er orðið nóg í bili, og já ég kem heim 3 júlí!! Og verð fram til 3 ágúst :D





Sumar….

20 04 2009

Hef ég eitthvað bloggað síðasta mánuðinn? Nei, ég hélt ekki! Þá er best að drífa í því held ég bara:D Við höfum það huggulegt hér á Stenhuggervej en það er stutt í að við flytjum saman í aðra íbúð. Við vorum orðnar ansi stressaðar með íbúðarleit, en fundum loks eina eftir 4ra mánaða leit!!! (myndir af núverandi íbúð má sjá á blogginu hennar c.d.s.m. aka Sólveigar)

Kostir við nýju íbúðina:
þad tekur mig tæpar 5 mínútur að labba í skólann
7 mínútur að labba í vinnuna
8 mínútur að fara í bæinn með metro
meira pláss
stærri ísskápur

Ókostir við nýju íbúðina:
FEIT EYDÍS

Sem þýðir að ég þarf að vera enn duglegri í ræktinni næsta vetur:D

En ég verð að segja að ég er ótrulega fegin að geta ennþá búið með Sólveigu! Annars hefðum við þurft að hafa sameiginlegt forræði yfir krítartöflunni okkar, hvernig hefði það nú farið? Ég er heldur ekki til í enn eitt Afríkana ævintýri!

Kveðjur frá Sólskins København





Uhomogeniseret letmælk

18 03 2009

Ad vera kona á Hommabar er eins og:

…ad vera grínisti á óskarsverdlaunahátíd
…ad vera stelpan sem bordar annad en gulrætur í Copenhagen Business School
…ad vera svíi sem ekki lifir fyrir forkeppni Eurovision
…ad vera Íslendingur án Visa-kortA

Thad er alltaf skondin upplifun ad fara á hommadjamm. Um helgina fór ég í bæinn ásamt Ása bródur og vid skelltum okkur á Rocco/Zum Biergarten thar sem var eitthvad svaka party. Ég skar mig verulega úr- og ástædurnar eru thessar:

1.    Ég fór ekki úr ad ofan
2.    Ég fór ekki úr ad ofan, og í aftur- til thess eins ad geta farid úr aftur
3.    Ég tafdi ekki rödina á badherbergid af tví ad ég var ad greida á mér augabrúnirnar (tharf thess ekki lengur, toppurinn felur thetta sívaxandi arfabed)
4.    Ég var ekki búin ad skipuleggja öll dansmúvin sem ég ætladi ad koma med- daginn ádur. (leim, ég veit)
5.    Ég var ekki med 5 threpa áætlun til ad skora einhvern gaur med six pack

Mér finnst samt alltaf jafn gaman ad fara á hommabari-thad er alltaf gód tónlist! Svo rekst madur á undarlegustu hluti og fólk:D til gamans má nefna ad thad eru nánast alltaf skálar med smokkum og jafnvel sleipiefni.Hentugt? Svo lika ef madur hefur thad af ad bída í röd eftir klósetti- thá kemur margt á óvart thar! Ég hef til dæmis séd handföng fyrir ofan klósett- já thid vitid til hvers thau eru vona ég☺ og thó ad séu sér stelpuklósett thá eru thau alltaf notud sem unisex- eda for having sex…

En já- annars allt gott ad frétta. Ég er reyndar ad drukkna í lærdómi sem er ekki ad gera sig…og thad verdur svona fram í júní!

Farid vel med ykkur-





25-hálf fimmtug!!

28 02 2009

Sælir félagar! Ég er í sjokki! Ég er ordin 25 ára…. Nei segi svona, dagurinn sem ég er ekki spurd um skilríki í ríkinu, hvort ég vilji barnamida í sund eda í strætó er ekki runnin upp enn- En ad allt ödru!

Íslandsferdin var ædisleg. 18 febrúar rann loks upp eftir ad ég og Sólveig vorum búin ad telja nidur á fallegu krítartöflunni okkar í tæpa 20 daga. Vid höfum aldrei verid jafn heimsborgaralegar, vorum bara med eina flugfreyjutösku hver og tókum metro alveg ad flugstödinni og bættum svo um betur thegar vid fengum okkur starbucks latte á flugvellinum! Ég hef heldur aldrei verid jafn lítid stressud fyrir flug- ég svaf fínt alla vikuna fyrir og svitnadi ekki einu sinni á flugvellinum. Svona á thetta ad vera. Eftir thriggja tíma flug vorum vid svo lentar í Keflavík í fínu vedri- miklu heitara en í Køben. *Mind five Sólveig*

Fyrsta kvöldinu eyddum vid ad sjálfsögdu med Elínu og Valgerdi í spjall- og slúdur☺ og fengum okkur dyrindismáltíd….tja eda..thetta hér:

thetta bragdadist reyndar betur en thad lítur út fyrir en var ansi FEITT:)

thetta bragdadist reyndar betur en thad lítur út fyrir en var ansi FEITT:)

Fimmtudagurinn var notadur í ad versla (ég naut mín med mínar dönsku krónur) og svo um kvöldid fórum vid út ad borda á Óliver thar sem vid pöntudum 4 ostborgara, nachos og 4 stóra bjóra. Tjóninum blöskradi frekar mikid tví hann átti líklega von á tví ad vid myndum allar panta kjúklingasalat med engri dressingu og vatn med! Oh BOY was HE mistaken!! Spaug Á föstudeginum fórum vid í smáralind (eda ég og Elín) og svo kom Sólveig seinna og ætladi ad hitta okkur- en hún nádi ekki í neinn thar sem hún átti ekki inneign. Og hún beid í örvæntingu thangad til einhver hringdi, sem Valgerdur gerdi og Sólveig svaradi med æsingi “loksins hringir einhver í mig!!” svo útskyrdi hún ad hún ætti ekki inneign og vissi ekkert hvad hún ætti ad gera- EF MADUR FÆR EKKI INNEIGN Ì SMÀRALIND THÀ ER SKO EKKI HÆGT AD FÀ INNEIGN NEINSSTADAR!!! Hahahahah mér finnst thetta of fyndid…

Laugardagurinn var tekin snemma, ég dreif mig upp í strætó med hjartad í brókinni tví thad er eins og madur hafi bara eitt tækifæri til ad hitta á réttan strætó í Reykjavík- annars er madur bara í tómu tjóni! En ég komst heilu og höldnu heim til Dísu frænku og Lailu líf og átti yndislegan dag hjá theim:D Um kvöldid var svo partyid heima hjá Valgerdi sem var bara mjög vel heppnad og thad komu ansi margir….

Dísa og Laila Líf

Dísa og Laila Líf

Vid stöllur fyrir partyid:)

Vid stöllur fyrir partyid:)

Sunnudagur var rólegur, horfdum bara á video og pöntudum pizzu. Já..vel heppnud ferd í alla stadi!! Bakaleidin var ekki eins spes og leidin til Íslands, fékk örlítid taugaáfall í flugtaki en vid hröpudum greinilega ekki svo thetta reddadist:D

Svo á mánudeginum eftir ad hafa sofid tæpa thrjá tíma skellti ég mér á tónleika med Katy Perry (med Ása) og thad var bara mjööög gaman thrátt fyrir mjög hátt hlutfall af smástelpum og foreldrum theirra.

Á leid á tónleika

Á leid á tónleika

Katy Perry!

Katy Perry!

Og nú er svo tekin vid skóli (fáránlega mikid af honum mætti madur segja), svo verdur afmælis party í kvöld!! Thar verdur mikid gaman og mikid fjör—vona ég! En vá thetta er ordid of langt og komid adeins of mikid af aulabröndurum:D





ÍSLAND

17 02 2009

Á morgun!!! Ég er ad koma til Reykjavíkur á morgun og jesú kristur hvad ég hlakka til. Dagskráin er einföld: hitta vini, djamma, borda íslenskt og hafa ógisslega gaman.

)

nyja hárid mitt mætir líka ad sjálfsögdu:)





Whazzzup!???

2 02 2009

Thad má segja ad thad sé nóg ad gera thessa daganna. Ég veit ekki afhverju allir skólar eiga thad til ad troda öllum skylduverkefnum inn í einn mánud, seinni part janúar og fyrri part febrúar. Svona er thetta allavega hjá CBS. Thad gerist nákvæmlega ekkert fyrri önnina nema rétt thegar vid thurfum ad fara í próf. Á næstu dögum tharf ég ad skila ritgerd í enskum og amerískum frædum, flytja fyrirlestur í sama fagi, fyrirlestur í spænsk- og suduramerískum frædum (á spænsku por supuesto).

Theim hefur líka tekist ad stytta eitt fag í adeins eins og hálfs mánada törn- í stad heillar annar og er lestrarálagid um thad bil 100-200 sídur fyrir hvern tíma…og vid erum í tímum nánast á hverjum degi. En sem betur fer er thad spennandi fag- Organization and communication, sem fjallar um public relations milli fyrirtækja og fólksins, og mun á auglysingum og PR.

(sorry ef thad er einhver sem ekki skilur)..

Svo er CBS líka ótrúlega duglegir í ad láta mann bída og bída…og bída eftir einkunnum. Ég fór í próf 17 des- sem ég er ekki búin ad fá útúr enn- og eitt í byrjun janúar sem ég er audvitad ekki búin ad fá einkunn fyrir. Thad eina sem pirrar mig samt vid thad er ad mig vantar ad fá námslánin mín greidd, og thad fær madur ekki nema senda inn sönnun um námsárangur.

Annars er bara allt fínt ad frétta, ég by enn bara á stenhuggervej med Gandálfi. Vid Gandálfur ætlum líka ad semja rapp lag fljótlega, á dönsku sem fjallar um lífid á stenhugger. Í tví tilefni erum vid búin ad fá rapparanöfn, vid bjuggum thau ekki til- thau urdu bara til! Thau eru the essence of our being.

Sólveig er nú: Bad Ass Amish

Eydís: Nilfisk Ninja

Thid getid farid ad gera ykkur tilbúin fyrir danskt rapp- og audvitad videó vid lagid. Peace out <3

NilFiSk NiNja




Artist?

24 01 2009

Thá er ég búin ad mála mitt fyrsta málverk! Ég er bara ágætlega ánægd med afraksturinn thar sem ég hef ekki málad mikid ádur…:) Hér má sjá mynd af gripnum:

Hvad á thad ad heita?

Hvad á thad ad heita?

Já, búin ad finna mér nytt hobbí. Practice makes perfect….








Follow

Get every new post delivered to your Inbox.